Liverpool er nálgæt því að komast að samkomulagi um að fá serbneska landsliðsmanninn Milan Jovanovic til sín frá belgíska liðinu Standard Liege í lok tímabilsins. Liverpool fengi kappann fyrir ekki neitt þar sem samningur hans við belgíska klúbbinn rennur út eftir tímabilið. Milan þessi er 28 ára sóknarmaður og hefur skorað 12 mörk í 23 leikjum í belgísku deildinni. Hann hafði þegar hafnað boði Everton og kallaði liðið “lítið”, og mun því vafalítið stimpla sig rækilega inn í hjörtu stuðningsmanna Liverpool. Umboðsmaður Milan lét þó hafa það eftir sér að fleiri lið séu á eftir kappanum, en það gæti einfaldlega verið til þess að flýta fyrir undirskriftum á samingum, eða ýta undir launakröfur leikmannsins.
Leikmönnum úr belgísku deildinni hefur gengið ágætlega í ensku úrvalsdeildinni, en Fellaini og Vincent Kompany hafa komið sterkir inn. Hvort þessi leikmaður eigi aftur á móti eftir að nýtast Liverpool getur tíminn aðeins leitt í ljós.
[Heimild - WhoAteAllthePies]
